157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[21:10]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta efh.- og viðskn. (Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir) (M) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Það sem ég óttast svolítið í þessu máli er að það sé einhver misskilningur í gangi, að þegar frumvarpið var samið hafi hv. þingmenn meiri hlutans mögulega haldið að þetta ætti við um einstaklinga sem væru að leigja út einhvern fjölda af eignum vegna þess að núna máttu bara leigja út tvær eignir með því að borga þennan sérstaka tekjuskatt, þ.e. 50% af tekjuskatti af tekjum af útleigu og með því að hækka tekjuskatt af leigutekjum eins og verið er að leggja til núna þá hafi meiri hlutinn haldið að þeir væru að ná utan um miklu fleiri eignir. Ég óttast að það sé vandamálið og þess vegna verður kannski ekki takmarkinu náð. Fyrsta spurningin er því: Er þetta eitthvað sem hv. þm. Jón Pétur Zimsen tekur undir, hvort það hafi verið einhver misskilningur um að fólk mætti bara leigja út eins margar eignir og það vildi eins og lögin eru í dag, en það er náttúrlega ekki svoleiðis. Raunveruleikinn er sá að það er enginn að stunda stóra leigustarfsemi á eigin kennitölu í dag. Þess vegna eru þetta íbúðirnar sem við ræddum um áðan, að fólk sé að leigja út sitt eigið heimili eða einhverja aukaíbúð, í mesta lagi tvær, kannski í einbýlishúsi. Það kannski reynir að kaupa einbýlishús, er með stóra fjölskyldu og reynir að búa til tvær leiguíbúðir í kjallara. Ég ætla bara að láta þessa spurningu duga, hvort hv. þingmaður telji að það gæti verið einhver misskilningur varðandi þetta frumvarp.