skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Herra forseti. Misskilningur, já, það kæmi reyndar ekkert á óvart að það væri misskilningur því að það er nú ýmislegt sem þessi ríkisstjórn hefur misskilið og ekki hugsað til enda og ótrúlega mörg frumvörp illa unnin og ekki séð fyrir endann á niðurstöðu þeirra. Það er ríkjandi varðandi nánast öll frumvörp sem ríkisstjórnin hefur sjálf kokkað hér upp. En það er alveg möguleiki að menn hafi séð fyrir sér einhverjar mörg hundruð eða þúsundir íbúða sem væri hægt að taka inn verulegan tekjuskatt í viðbót af leigutekjum og menn væru einhvern veginn annaðhvort að fæla menn út á markaðinn með íbúðirnar eða taka fullt í skatt inn. Það er kannski erfitt að setja sig í hugarheim ríkisstjórnarinnar en þegar það er þessi skattavírus, þetta virðist bara vera einhver vírus, að menn megi ekki sjá eitthvað sem mögulega beri einhverjar tekjur, þá fara menn bara beint í það og hugsa: Hvernig getum við skattlagt það í botn? Fyrir vikið verður ekkert umfram. Það verður ekkert umfram til nýsköpunar. Það verður ekkert umfram til að stækka og bæta við sig. Það verður ekkert umfram til verðmætasköpunar. Fyrir vikið minnkar samkeppnishæfni einstaklinganna og þegar samanlögð samkeppnishæfni einstaklinga minnkar, þá minnkar samkeppnishæfni samfélagsins. Þetta er svo röng nálgun að halda það að skattahækkanir muni bæta hag samfélagsins. Þær geta tímabundið aukið tekjur ríkissjóðs en þegar horft er fram í tímann þá mun skattsporið lækka. Þetta hefur sýnt sig í gegnum söguna. Það er ótrúlegt að menn læri ekki af sögunni. Þetta hefur sýnt sig í gegnum söguna í ótal samfélögum sem á endanum reka í þrot. Þetta er náttúrlega bara í raun kommúnismi, sósíalismi, sem menn eru að tala um hér. Þetta er ekki góð leið og mun ekki koma til með að stækka skattspor þjóðarinnar.