157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[21:14]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Við erum að ræða hér nefndarálit um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta, gjöld o.fl. Það eru tollar á leigutekjur. Þetta er svokallaður bandormur tvö. Ég vil nú bara byrja á því, eins og ég hef gert hér í mínum ræðum um þetta allt saman, að þakka nefndinni. Ég sé að hér er hv. formaður efnahags- og viðskiptanefndar í salnum og þakka honum fyrir mjög gott samstarf í nefndinni og góða stýringu á því sem þar fór fram, enda var nefndin störfum hlaðin og ekkert alveg auðvelt verkefni einhvern veginn að koma sér í gegnum þann skafl sem nefndin var með en þetta tókst nú allt saman og hingað erum við komin og bara vel gert.

Það er svo sem ýmislegt í þessu frumvarpi sem er vert að skoða. Ég ætla nú ekki að fara hér í alla liði, ég sé ekki alveg tilgang með því kannski, en langar að fara yfir nokkra punkta. Ég ætla að byrja á því að fara í frítekjumark barna yngri en 16 ára og fagna því enda hefur upphæðin verið óbreytt frá 2013. Við erum að fara úr 15.000 í 25.000 á mánuði. Ég tek undir það sem hefur komið fram og er, ef ég man rétt, í nefndaráliti 1. minni hluta, að skoðuð verði staða þeirra sem borga hærri skatta en 16 ára börn, skoðað milli umræðna að börn yngri en 16 verði ekki verr sett en börn 16 ára og eldri. Þetta var aðeins rætt í nefndinni. Ég geri mér grein fyrir því að við höfum takmarkaðan tíma en það væri engu að síður, held ég, bara þarft og gott að skoða það hvort sem það er þá gert á milli umræðna eða nefndin myndi hreinlega taka það upp eftir áramót að skoða þennan þátt.

Síðan er hér náttúrlega sá liður sem ég veit að flestir hafa nú haft skoðun á og er kannski sá þáttur sem ég hef líka verulegar áhyggjur af. Það er að þessi tekjuskattur af leigutekjum einstaklinga af leiguíbúðum sé að fara að hækka úr 50% tekjuskatti í 75% og í raun og veru hækki virk skattbyrði leigutekna úr 11% í 16,5%. Ég, virðulegur forseti, hef verulegar áhyggjur af því að þarna séum við ekki á réttri leið. Þó að ég skilji hugmyndafræðina og skilji hverju meiri hlutinn er að reyna að ná fram með þessari breytingu þá er mér til efs að það muni ganga eftir. Það er verið að reyna að ýta fólki frá því að vera að safna upp fasteignum og leigja og koma þeim þá út á markaðinn þegar það verður ekki eins fýsilegt að leigja þær, ýta fólki í þá átt að selja og nota þá sparifé sitt eða fjármagn til annarra fjárfestinga. Ég held því miður að raunin verði sú að við munum ekki sjá einhverja stórkostlega aukningu í því að þeir einstaklingar sem eiga fasteignir í dag og eru að leigja þær út fari að selja sínar eignir. Þvert á móti held ég að það verði ekki þannig. Við höfum svo sem alveg fengið umsagnir um það og ég hef heyrt í fólki sem er í þessari stöðu og ég fæ sama svarið alls staðar, að fólk hafi ekki hug á því að selja sínar eignir. Hins vegar mun þetta koma fram í leiguverði. Þetta mun hækka leiguverð. Ef ég man rétt segir beinlínis í frumvarpinu að það muni gera það. Þetta getur mögulega líka þýtt að við séum að sjá þetta hafa áhrif inn í vísitöluna þar sem húsnæðisliðurinn er partur af vísitölunni. Þetta getur hækkað hana og mun sennilega gera það, þannig að ég held að við séum á rangri leið þarna, því miður. Eina afleiðingin sem við munum sjá af þessari breytingu verður hærra leiguverð. Það, virðulegur forseti, getur ekki verið markmið og ætlun ríkisstjórnarinnar að fara þá leið að leggja hér til breytingar í þessum bandormi sem munu einungis leiða til þess að leiguverð hækki og það verði dýrara fyrir fólk sem er á leigumarkaði að koma þaki yfir höfuðið, þannig að ég geld mikinn varhug við þessari tillögu og held að hún sé vanráðin.

Við erum hér líka með annan hlut í þessu frumvarpi sem eru þessar tollvörugeymslur þar sem er verið að ræða um einstaklinga sem hafa hlotið dóm vegna brota á tollalögum fyrir fíkniefnabrot og eiga samkvæmt þessari tillögu engan rétt á að endurheimta borgaraleg réttindi sín þrátt fyrir að hafa tekið út refsingu og ekki brotið af sér í ákveðinn árafjölda eins og gengur. Við erum að tala um að þú afplánir þinn dóm og afplánir þína refsingu. Ég velti því fyrir mér hvort við séum einfaldlega að ganga of langt þarna. Nú ræddum við þetta í nefndinni, eins og allt svo sem, virðulegur forseti, en meiri hlutinn hefur ekki séð ástæðu til að breyta þessu þannig að þetta er þá bara þeirra ákvörðun hér og nú og eitthvað sem þau þurfa að svara fyrir. Engu að síður finnst mér hart að ganga svona fram í þessu máli. Við þekkjum öll einstaklinga sem hafa runnið til á lífsleiðinni, mögulega ungir að árum og tekið sig svo saman og eru orðnir fyrirmyndarborgarar í dag með fjölskyldu og orðnir — að þessir einstaklingar séu útilokaðir frá þessu er svolítið bratt, verð ég að segja.

Ég er ánægður með þessa tillögu hér varðandi skattfrádrátt vegna hlutabréfakaupa og að þetta sé lengt í þrjú ár í stað tveggja. Ég held að það sé bara fínt. Þetta snýst um fyrirsjáanleika. Því meiri fyrirsjáanleiki, því betra. Það er það sem atvinnulífið hefur verið að kalla eftir. Atvinnulífið hefur verið að kalla eftir þessu öllu og það er gott að við erum að bregðast við þessu hér því við erum ekki að bregðast við þessu alls staðar. Ég styð þetta.

Varðandi verndarráðstafanirnar þá er ég svo sannarlega sammála að við þurfum að hafa slíkt vopn í okkar vopnabúri, að geta sett verndartolla eða verndarráðstafanir á ef við teljum að hagsmunum hér innan lands sé ógnað með einhverjum hætti. Ég veit ekki alveg hvað mér finnst um að þessi heimild sé hjá ráðherra. Ég velti því fyrir mér hvort þessu væri ekki betur fyrir komið hjá þinginu. Ef upp koma þannig aðstæður, virðulegur forseti, að það þurfi að bregðast við mjög hratt þá getur þingið gert það. Við höfum séð það hér margoft að þingið hefur brugðist við og samþykkt lagafrumvörp á einum degi. Ef þingið er ekki starfandi þá er svo sem hægt að kalla þing saman með mjög stuttum fyrirvara. Það er mér til efs að við séum að tala um eitthvert dagaspursmál í þessu máli. Ég sé einhvern veginn ekki hvaða tilfelli ætti að koma upp þar sem það skiptir máli hvort þetta er afgreitt á einum, tveimur eða þremur dögum, þannig að mér finnst svolítið verið að skauta fram hjá þinginu í þessu en verndarráðstafanir verðum við að hafa þannig að ég fagna því að þær séu hér en geld varhug við hinu.

Svo langar mig að tala um kartöflurnar. Við sem höfum heyrt í Bændasamtökunum vitum að það er mikill titringur þar út af þessu. Ég tek bara undir með Bændasamtökunum, ég sé ekki alveg fyrir mér af hverju við þurfum að lengja þetta. Nú skilst mér eftir samtöl við aðila þar inni að það séu allar geymslur stappfullar og það sé enginn skortur á einu eða neinu. Mér finnst þetta ekki gott og ég skil ekki alveg í meiri hlutanum að vera að hanga með þetta hérna inni þegar hefur verið sýnt fram á að þörfin er ekki fyrir hendi. Við erum að tala um mjög viðkvæma starfsemi sem er viðkvæm gagnvart innflutningi. Hún er mikilvæg fyrir okkur og við viljum hafa þessa atvinnugrein. Ég meina, hver elskar ekki að borða íslenskar kartöflur? Við þurfum að standa vörð og standa með kartöflubændum í þessu. Ég hef áhyggjur af þessu og held að það hefði verið betra að gera þetta með öðrum hætti, að endurnýja þetta ekki.

Það er svo sem ekkert mikið meira sem mig langaði að nefna í þessu. Stóra málið í þessu fyrir mig er að ég hef áhyggjur af leigunni. Ég held að það muni ekki virka eins og upp er lagt með. Ég held að það muni algerlega fara í andhverfu sína. Þetta mun bara þýða að leiguverð mun hækka og það verður erfiðara fyrir fólk að komast inn á leigumarkað. Svo hef ég sömuleiðis áhyggjur af kartöflubændum. Ég vona bara að meiri hlutinn sé að hlusta vel hér á okkur og við höfum enn þá tækifæri til þess að bregðast við og breyta þessu. Það er bara mín beiðni og ósk til meiri hlutans að koma til móts við þau sjónarmið sem hér hefur verið lýst og ég get ekki ímyndað mér annað en að stór hluti þeirra sem sitja hér á hinu háa Alþingi sé sammála því í hjarta sínu þó að það væri ekki nema bara til þess að bjarga kartöflunum okkar.