skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Herra forseti. Ég vil þakka þingmanninum fyrir góða ræðu og fyrir einstaklega gott samstarf í efnahags- og viðskiptanefnd. Mig langaði að taka upp tvö atriði. Tökum náttúrlega kartöflurnar í seinna andsvarinu, eðlilega. Mig langar aðeins að ræða við hann hæfisskilyrðin til þess að reka blandaðar tollvörugeymslur. Svo það sé algjörlega ljóst þá er ekki verið að gera tillögur að neinum breytingum. Þetta hefur verið óbreytt frá upphafi. Meiri hluti nefndarinnar er ekki að gera neinar breytingar á þessu en hún er að mælast til þess við ráðuneytið að það skoði að gera þessar breytingar, af því að það sé svo sannarlega kominn tími til. En það þarf að skoða þetta í víðara samhengi og gera þetta með góðum undirbúningi. Þessi athugasemd kom náttúrlega inn frá hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur og nefndin var alveg sammála um að það sé alveg kominn tími til að endurskoða þetta. En bara svo að það sé enginn misskilningur, þá var nefndin ekki að gera neitt. Það var engin tillaga um það frá ráðuneytinu og engin tillaga frá nefndinni, en við tökum undir þessi sjónarmið hv. þm. Nönnu Margrétar Gunnlaugsdóttur um að það sé kominn tími til að skoða. Ég vildi að það væri alveg á hreinu hvað það varðar.
En það er eitt mál sem við hv. þingmaður höfum verið mjög sammála um og ég spurði hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur að hér áðan og það er varðandi jöfnun raforkukostnaðar. Það er eitt mál sem Framsóknarflokkurinn hefur staðið með okkur í. Reyndar var svo ánægjulegt að öll efnahags- og viðskiptanefnd stóð saman að þessu í vor þannig að ég hlakka til þegar við greiðum atkvæði um þetta vonandi síðar í vikunni eða í næstu, ég veit það ekki, vonandi allavega fyrir jól, hvort það megi ekki búast við liðsinni Framsóknarflokksins þegar við förum að jafna raforkukostnað alveg að fullu milli þéttbýlis og dreifbýlis því það yrði svo sannarlega mikilvægt landsbyggðarmál og hvort við megum ekki búast við liðsinni Framsóknarflokksins í því.