skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið. Það er kannski bara vegna þess að þegar maður er búinn að vera hér lengi og halda margar ræður og vaka langt fram eftir nóttu og vakna snemma þá verður maður pínu óskýr. Ég geri mér grein fyrir því að það er ekki verið að gera neinar breytingar. En það er nú oft þannig að þegar við erum að opna hér ákveðið mál og lagabálka þá nota menn ferðina til þess að breyta því sem þarf að breyta og bæta það sem þarf að bæta, þó að það sé kannski ekki alveg akkúrat það sem ráðuneytið var að hugsa á þeim tíma. Oft sjá nefndirnar eitthvað þarna inni sem þær vilja stagbæta eða bæta og nota þá ferðina. Það er einfaldlega það sem ég er að segja. Sá sem hér stendur hefur nú eftir 25 ára starf í lögreglunni einmitt orðið vitni að ansi mörgum sem maður hafði kannski ekki mikla trú á á yngri árum en eru orðnir fyrirmyndarborgarar í dag. Því sér maður ákveðna ósanngirni í því að hafa þetta með þessum hætti. Það var nú bara það sem ég vildi benda á, en nefndin er ekki að leggja neitt nýtt til þannig að það sé algjörlega sagt hér.
Varðandi jöfnun raforkunnar þá styðjum við það að sjálfsögðu. Ég meina, þetta er mál sem við í Framsóknarflokknum höfum barist fyrir í áraraðir og öll skref í þá átt eru jákvæð. Það sem maður hefur hins vegar áhyggjur af, virðulegur forseti, er það að þrátt fyrir að mörg skref hafi verið tekin og oft í átt að þessari jöfnun, þá virðist það einhvern veginn alltaf detta til baka. Það er það sem ég hef áhyggjur af í þessu, að einhvern veginn verði bara hækkað á móti þannig að þetta verði ekki að fullu jafnað. En liðsinni Framsóknarflokksins eiga allir sem vilja jafna raforkukostnað á landsbyggðinni.