157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[21:33]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Arna Lára Jónsdóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka þingmanninum fyrir mjög gott andsvar. Þá að kartöflunum. Það kom fram í umsögnum um málið hvort það væri þörf á að framlengja þetta bráðabirgðaákvæði sem felur það í sér að innfluttar kartöflur fá lækkaða tolla í einn mánuð á ári. Það er yfirleitt til þess að verja neytendur og svo að upp komi ekki skortstaða. Það komu auðvitað fram andstæð sjónarmið í umsögnum um þetta ákvæði. Bændasamtökin vilja láta taka þetta út og vilja hvetja neytendur til að borða íslenskar kartöflur. Ég held að flestir Íslendingar velji íslenskar kartöflur, ég held að það sé alveg ljóst. En svo taldi Félag atvinnurekenda þörf á því að halda þessu inni og hafa það jafnvel lengra. Það má geta þess að þetta tímabil, einn mánuður, var lengra í lögunum frá 2019. Núna búum við svo vel að það var auðvitað frábært sumar þannig að það eru allar kartöflugeymslur fullar. Það voru hér umræður fyrr í kvöld um að það væri verið að ganga af kartöfluframleiðslunni dauðri. Ég trúi því engan veginn af því að ég hef svo mikla trú á íslenskum neytendum, að þeir velji alltaf íslenskar kartöflur fram yfir innfluttar erlendar, jafnvel þótt þær séu einhverjum krónum ódýrari. En einn mánuður, ég held að það verði ekki til þess að kartöfluframleiðendur þurfi að loka framleiðslu sinni eða fari í þrot. Ég hef meiri trú á íslenskum neytendum og ég held að þeir muni alltaf velja íslenskar kartöflur fram yfir innfluttar. Mig langaði að fá skoðun hv. þingmanns á því hvort hann sé ekki sammála mér í því að íslenskir neytendur muni alltaf velja íslenskar kartöflur svona heilt yfir fram yfir þessar innfluttu, sem eru náttúrlega ekki næstum því eins góðar.