157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[21:35]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir innblásið síðara andsvar um kartöflur og það þarf ekkert að hvetja þann sem hér stendur til að velja íslenskar kartöflur. Það geri ég alltaf. Hins vegar er málið kannski þannig vaxið að núna eru náttúrlega þær forsendur, eins og hv. þingmaður kom inn á, að það er nóg til af innlendri framleiðslu. Það þýðir að ef við opnum þótt það sé ekki nema einn mánuð á ári fyrir niðurgreiddar erlendar kartöflur þá munu þær flæða hér í töluvert miklu magni inn á markaðinn sem mun hafa áhrif á sölu á íslenskum kartöflum. Hv. þm. Arna Lára Jónsdóttir spyr um það hvort íslenskir neytendur muni ekki velja íslenskar kartöflur. Jú, örugglega mun stór hluti gera það en ef allir íslenskir neytendur myndu velja íslenskar kartöflur þá væri heldur ekki þörf á þessu ákvæði, er það, því þá myndi enginn kaupa þessar innfluttu kartöflur. Því miður er það ekki raunin. Þess vegna eru þær fluttar inn, vegna þess að þær seljast, vegna þess að þær eru ódýrari. Það er það sem málið snýst um. Ég segi það bara hér í mínu síðara andsvari, virðulegi forseti: Við eigum að leyfa íslensku kartöflunni að njóta vafans. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)