157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[21:36]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir prýðisræðu og byrja á því að nefna aðeins andsvör sem fóru fram fyrr í kvöld við hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur, að inni í nefndinni hafi verið rætt um með jákvæðum hætti að taka af þessi ákvæði og skyldur varðandi það ef menn hafa einhvern tímann verið dæmdir fyrir einhvers konar brot. Sjálfur sit ég ekki í nefndinni en las úr greinargerðinni og spyr hv. þm. Stefán Vagn Stefánsson um það sama. Hv. þingmaður fjallaði um þetta varðandi það að starfsleyfi vörsluhafa ótollafgreiddra vara beri ríkari skyldur samkvæmt ákvæðum frumvarpsins og tilgangur hennar er að standa vörð um tekjur ríkisins og vernda þar með hagsmuni samfélagsins og almennings. Þegar maður les þetta í greinargerðinni skil ég það þannig að það er ekki verið að breyta neinu en það er líka aðgerð að gera ekki neitt. Það er það sama bara í einelti. Menn horfa á og gera ekki neitt. Við erum með þetta inni að ef menn misstíga sig einhvern tímann, 17, 18, 19, 20 ára, fyrir fíkniefnabrot og ég held að ótrúlega hátt hlutfall Íslendinga hafi einhvern tímann getað lent í því að vera nappaðir með fíkniefni ef allir myndu alltaf vera teknir þegar þeir væru með þau undir höndum. En þá langar mig að spyrja hv. þingmann hvort nefndin muni ekki reyna með einhverjum hætti að taka þetta út. Ég heyri að það er mikill vilji í nefndinni og hv. formaður hennar, Arna Lára Jónsdóttir, virðist vera mjög hlynnt því líka og það sé verulegur meiri hluti fyrir þessu. Mun hv. þingmaður beita sér fyrir því inni í nefndinni að laga þetta?