157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[21:39]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið. Það er bara stundum þannig þegar við erum að gramsa í þessum lögum og í þessum lagabreytingum og þessum bandormum og hverju sem er, að þá allt í einu kannski reka menn augun í eitthvað sem menn voru ekki búnir að átta sig á að væri þarna. Reka augun í eitthvað sem menn sjá að er augljóslega barn síns tíma eða hlutir sem menn vilja breyta og það er náttúrlega bara niðurstaðan og staðreyndin í þessu máli. Ég gat ekki annað heyrt í nefndinni en að það væri ríkur vilji allra að skoða þetta. Ég get svo sem ekki svarað fyrir hv. formann efnahags- og viðskiptanefndar en ég veit að hún er viðræðugóð um allt mögulegt og ég gat ekki heyrt á henni í nefndinni annað en að hún væri til í að skoða þetta. Þetta er eitthvað sem nefndin gæti tekið upp. Það er mér til efs að það sé hægt að gera það á milli umræðna, einfaldlega út af tíma, en klárlega eitthvað sem nefndin gæti gert á seinni stigum og jafnvel bara í frumkvæðismáli, ef út í það er farið. Þetta mál er akkúrat dæmi um það. Og alveg eins og hv. þingmaður kom að í andsvari sínu þá sjá það einhvern veginn allir hvers lags óréttlæti það er að ef einhver einstaklingur, kannski 16, 17 ára gamall, er tekinn með fíkniefni undir höndum sé honum einhvern veginn fyrirmunað að koma inn í þessi verkefni það sem eftir er ævinnar. Þú getur framið miklu verri glæp og setið og afplánað þinn dóm. Þetta stingur einhvern veginn í stúf við allt.