skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir svar við andsvari mínu. Þá vil ég beina sjónum mínum að því sem sá sem hér stendur hefur mestar áhyggjur af og mér heyrðist hv. þm. Stefán Vagn Stefánsson hafa það líka, en það er þessi verulega hækkun á skattlagningu leigutekna. Hér erum við með ríkisstjórn sem er að reyna að handstýra húsnæðismarkaðnum með því að setja ofurskatta á leigutekjur á einstaklinga sem eru með húsnæði á sinni kennitölu. Þetta beinist ekki gegn stóru leigufélögunum, Ölmu eða einhverju slíku, heldur gegn einstaklingum sem eiga mögulega litla íbúð eða tvær í einbýlishúsi eða eitthvað slíkt. Markmiðið er þá að skattleggja leigutekjurnar svo mikið að fólk einhvern veginn neyðist til að selja eða að hvatinn til að selja verði meiri. En oft og tíðum er þetta húsnæði ekki þess eðlis að sá sem er að leigja það út komi til með að geta selt það eða vilji selja það vegna þess að oft tengist það bara öðru stærra húsnæði eða eitthvað slíkt.
Það sem mig langar því að spyrja hv. þingmann að er tvennt: Hvað heldur hann að þessi skattahækkun á leigutekjur komi til með að gera og hvaða leið myndi hv. þingmaður fara frekar til að fjölga húsnæði á markaðnum aðra heldur en þá að setja ofurskatta á leigutekjur? Það er þetta tvennt, þ.e.: Mun þetta gefa þann skatt og vera sanngjarnt og hvaða leið myndi hv. þingmaður fara ef hann væri við stjórnvölinn?