157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[21:43]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir síðara andsvarið. Það er alveg ljóst og það er alveg hárrétt sem hv. þingmaður spurði mig að og hafði áhyggjur af hér varðandi hvað muni gerast og ég deili áhyggjum hans í því. Þetta mun hækka leiguverð. Þetta mun þýða það að það verður erfiðara fyrir fólk að leigja vegna þess að það er mjög mikið af eignum sem er verið að leigja út, t.d. neðri hæðir í stórum sérbýlum, sem fólk mun ekki selja. Fólk mun ekki selja neðri hæðina hjá sér. Það vill það ekki. Svo held ég bara, eins og ég kom að í minni ræðu áðan, að raunveruleikinn sé sá að þú hækkar leiguverðið, þú bara hækkar leiguverðið og kemur út á pari. Yfirleitt er leigan miðuð við að þú getir borgað af íbúðinni, að hún standi undir sér að mestu eða öllu leyti og þú bara setur þessa nýju breytu inn í excel-skjalið þitt og færð út nýja tölu sem þú rukkar leigjendur um. Þannig mun þetta gerast og þetta mun hafa áhrif inn í vísitöluna. Þetta mun hafa áhrif til þess að verðbólgan mun fara upp. Það er bara augljóst, þannig að fyrir mér er þetta vond aðgerð og hún mun snúast upp í andhverfu sína.

Varðandi hvaða leiðir sá sem hér stendur sér í staðinn er kannski erfitt, ég á 12 sekúndur eftir, virðulegur forseti, að fara yfir það. En við þurfum náttúrlega að fara í alvöruaðgerðir á framboðshliðinni. Það þarf að auka eftirspurn eftir húsnæði. Það er gert með samstarfi við sveitarfélögin, með fleiri lóðum og með því að einfalda regluverkið, gera það ódýrara og einfaldara að byggja. Hætta með þessar hækkanir. (Forseti hringir.) Lækkum á verktakana. Lækkum á stóru og litlu verktakana þannig að þeir geti farið í að byggja hér íbúðir. Þá leysist þetta.