skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni fyrir sína yfirferð yfir þetta frumvarp. Mig langar að spyrja hann aðeins út í það sem hann ræddi hér í pontu og byrja á því að vera með smá inngang. Það er það að þegar við sjáum að eitthvað bitnar á einhverjum öðrum en okkur þá erum við síður að hugsa um það, en þegar það bitnar á okkur þá rísum við venjulega upp á afturlappirnar. Þetta er minn skilningur á mannlegri hegðun. Hv. þingmaður var að lýsa hér fyrstu kaupendum íbúða, sem með ráðdeild og fyrirhyggju eru tilbúnir að fórna því að búa í sinni eigin íbúð fyrstu eitt, tvö, þrjú árin, og til hvers? Til að safna upp og borga inn á höfuðstólinn og lækka greiðslur á lánum. Þá minnist ég þess að ég held að allir þingmenn hafi fengið tölvupóst frá ungri konu sem var formaður í einhverju jafnaðarmannafélagi sem tengist líklega Samfylkingunni og þessi unga kona var einmitt í þessari aðstöðu. Hún og unnusti hennar ákváðu að búa hjá foreldrum hans í einhvern tíma til að safna og leggja inn á höfuðstólinn. Þau voru með ákveðna fyrirhyggju en svo kemur þetta eins og skrattinn úr sauðarleggnum, fyrirsjáanleikinn enginn. Hún nefndi að þarna væri búið að festa þau í hlekkjum heimilis foreldra unnustans í nokkur ár í viðbót og þau gætu þá ekki borgað inn á höfuðstólinn. (Forseti hringir.) Hvað finnst hv. þingmanni um þessa skattahækkun án þess að fyrirsjáanleikinn sé almennilegur í þessu máli?