157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[22:06]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir hans spurningu. Þetta var kannski það sem ég var að ræða, þ.e. fyrstu kaupendur, að þetta kæmi hart niður á þeim, og kom með tölur í því sambandi og tók dæmi um leigu og skatt af því og hvað það myndi hækka og gerði hugsanlegt ráð fyrir því að leigan myndi verða hækkuð um svipaða upphæð.

Ég man eftir bréfinu frá þessum jafnaðarmanni sem sendi trúlega á alla þingmenn, alla vega fékk ég svoleiðis bréf. Þar var hann einmitt að lýsa nákvæmlega þessu, hvort hún sjálf var í þeirri stöðu eða einhver annar sem hún vitnaði í, að hún eða einhver sem hún þekkti væri að kaupa íbúð og það væri einmitt mjög hentugt að geta leigt hana út af því að þau væru í þeirri aðstöðu að geta verið annars staðar, hvar sem það nú var, ég man það ekki, en gátu dvalið annars staðar á meðan þau leigðu út þessa íbúð sem þau voru að kaupa. Auðvitað er þetta slæmt, frú forseti. Auðvitað er það ekki gott að Samfylkingin sé að pirra þetta fólk. Þetta er ekki fallegt. En skattar eru í eðli sínu ósanngjarnir. Þeir eru það í eðli sínu og alveg sama hvað menn kalla þetta, þótt menn kalli þetta leiðréttingar og alls kyns nöfnum. Ég hef ekki á takteinum hvaða nöfn menn hafa á þessu, ég get komið að því í mínu seinna andsvari. Eðli skatta vill oft vefjast fyrir fólki.