157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[22:08]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni fyrir svar við andsvari mínu. Hv. þingmanni var tíðrætt um krumlur í vösum í sinni ræðu sem var ágætislíking. Sem betur fer erum við ekki kolkrabbar því að þá hefðum við fleiri arma til að sækja ofan í vasa almennings. En það sem mig langar að spyrja hv. þingmann um er í raun þessir fjárfestingarkostir fyrir fólk sem hefur nurlað saman einhverju og vill kaupa eitthvað. Fólk getur auðvitað fjárfest í ríkisvíxlum og hlutabréfum og svo getur fólk fjárfest í atvinnulífinu. Getur verið að ríkisstjórnin vilji þrýsta fólki, þetta er mögulega langsótt, út í atvinnulífið til að geta skattlagt það þar líka? Þannig að það geti slegið tvær flugur í einu höggi, þvingað fólk til að selja eignir sínar af því að það er kominn ofurskattur á leigutekjur og vona að fólk fari síðan út í atvinnulífið, fjárfesti í hlutabréfum eða fjárfesti í einhverju öðru, segjum bara sjávarútvegsfyrirtæki eins og hefði getað gerst hér og svo er bara bamm, kominn skattur á sjávarútvegsfyrirtæki eða skattur á fasteignafélög eða skattur á smávöru. Einhver skattur af því að pólitísk óvissa er gríðarleg í kringum þessa skattastjórn. Við vitum aldrei hvar skattasleggjan slær niður næst. Ég efast reyndar sjálfur um að menn geti verið þetta útsmognir en miðað við hegðun ríkisstjórnarinnar í skattamálum þá langar mig að fá að vita hjá hv. þingmanni hvort þetta gæti verið einhvers konar möguleiki.