skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir ágætis seinni fyrirspurn. Já, þetta kemur mér náttúrlega til að nefna það að þessi ríkisstjórn, jafnvel þótt Viðreisn sé í henni sem er borgaralegur flokkur, eða þeir sögðu það, og Flokkur fólksins sem er, ég veit ekki alveg hvar þeir ættu að vera á þessu rófi en a.m.k. Viðreisn telur sig vera borgaralegan flokk — þeir eru náttúrlega búnir að afsanna það svo frægt er orðið með þátttöku í þessari ríkisstjórn og með gjörðum í þessa 11 eða 12 mánuði sem þeir hafa verið í ráðherrastólum. Ríkisstjórnin skiptir sér af öllu. Fólk er að leigja út íbúðir til að geta eignast þær, ungt fólk. Fólk má ekki nýta ónýtt skattþrep sín á milli, það er lokað fyrir það, og svona mætti telja mjög lengi. Þau skipta sér af öllu. Þau stjórna lífi fólks, stjórna lífi fólks. Þau láta það bara ekki friði, þau láta fólk ekki í friði. Fólk er nýsest niður og þá kemur nýr skattur. Þá þarf það að standa upp vegna þess að ríkisstjórnin, með sínu stórkostlega hugmyndaflugi — sem verður að hrósa þeim fyrir. Ég verð að hrósa hv. ríkisstjórninni fyrir það hvað þau eru stórkostlega hugmyndarík. Hugmyndaflug þeirra er alveg með ólíkindum. Það má hvergi nokkurs staðar nokkurn lífsanda draga eða vera einhvers staðar án þess að það sé skattlagt. Og ef það er skattlagt áður, þá verða þeir hækkaðir, skattarnir. Ef það er ekki skattlagt þá eru lagðir skattar á. Þetta er aðalsmerki þessarar ríkisstjórnar.