157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[22:41]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta efh.- og viðskn. (Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir) (M) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðisræðu. Þetta er sannkallaður skattahækkunardagur. Hv. þm. Vilhjálmur Árnason fór ágætlega yfir skattasýki þessarar ríkisstjórnar. Hvernig hún byrjaði á sjávarútvegsgreinum, á landsbyggðinni og núna á ferðaþjónustunni. Nýsköpunargeirinn er ekki undanskilinn. Það á að lækka framlög þar þrátt fyrir loforð um allt annað, um að það eigi að auka við, þá fara orð og efndir ekki saman. Svo er það almenningur. Hann mun lenda hart í skattahækkunum 1. janúar og í þessu frumvarpi er lögð til hækkun á leigutekjum, eins og hv. þingmaður fór vel yfir. Leigutekjum þeirra einstaklinga sem leigja út tímabundið sína eigin fasteign, sem kannski eru með fasteign í kjallaranum og leigja hana út. Þetta fólk fær hækkunina. Þetta er fólkið sem getur ekki sett fasteignirnar í félag. Þú setur ekki heimilið þitt í félag. Ef þú ert með fasteign í félagi getur þú leigt hana út, notað gjöld á móti tekjum. Þú getur það ekki sem einstaklingur. Þess vegna gátu einstaklingar borgað lægri skatt af leigutekjum. Nú á að gera stöðuna ójafnari fyrir þennan hóp. Því spyr ég: Er þetta enn eitt frumvarpið þar sem það er einhver tilgangur og markmið, við meðferðina sést að sá tilgangur næst ekki en samt er engu breytt og við höldum hérna áfram? Hvaða skoðun hefur hv. þingmaður á þessu? Er þetta svona?