157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[22:43]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Árnason) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Já, þetta er nefnilega ekkert flókið. Þetta er svona. Allir aðilar sem þekkja til — meira að segja í frumvarpinu sjálfu, í nefndarálitinu sjálfu er það viðurkennt að þetta er að fara í öfuga átt. Öryrkjabandalag Íslands kvartaði undan þessu máli og talaði gegn því. Samt er haldið áfram. Þetta er enn eitt málið þar sem fjölskyldurnar í landinu missa enn einn möguleikann til að bjarga sér. Það er hlutverk, markmið og vilji hverrar fjölskyldu að búa til svokallaðan fjölskylduauð til að geta búið til öruggt og vaxandi umhverfi fyrir fjölskylduna, fyrir börnin, ala þau upp, tryggja þeim gæfuríka framtíð, styðja þau til náms og koma þeim á legg út í lífið. Það kallar oft á ýmsar lausnir. Það þarf að bjarga sér. Það gæti þurft að innrétta bílskúrinn og leigja hann út. Það gæti þurft að skipta íbúðinni upp til að ná endum saman. Það gæti þurft að nýta samsköttun hjóna. Það gæti þurft að kaupa sparneytnari bíl. Það er ýmislegt sem gæti þurft að gera til þess að ná endum saman í fjölskyldunni. Nýta séreignarsparnaðinn inn á lán til að lækka mánaðarlega afborgun. Þetta er allt eitthvað sem fjölskyldur gera til að ná endum saman. Nei, hæstv. ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur segir bara: Nei, nei, nei. Það er einhver sem gæti mögulega verið að græða á þessu og þá megið þið alls ekki fá þessa möguleika. Alls ekki.