157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[22:45]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta efh.- og viðskn. (Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir) (M) (andsvar):

Forseti. Ég þakka kröftugt svar. Það sem er að gerast núna er að hv. þingmenn meiri hlutans og menn og konur í kringum ríkisstjórnina eru að koma á samfélagsmiðla og í fréttir núna og halda því fram enn þá að þau séu ekki að hækka skatta. Þetta sé bara blekking hjá minni hlutanum. Samt stendur svart á hvítu frá fjármálaráðherra að þeir eru að hækka skatta um tugi milljarða, en þetta er blekkingaleikurinn. Við vitum um áhrifin sem eru að byrja að koma í ljós í kringum sjávarútvegsfyrirtækin. Það eru ekki góðar fréttir. Við vitum að ríkisstjórnin mun fá þetta allt í andlitið, ferðaþjónustuna, þær skattahækkanir sem munu ekki skila sér. Við erum samt að reyna að koma í veg fyrir að þau fái þetta í andlitið því að það bitnar verst á fólkinu í landinu.

Af því að hér komu fréttir um makrílviðræður í dag þá sé ég líka á samfélagsmiðlum póst frá Einari Birgi sem er með Tandrabretti sem mig langar í þessu samhengi að vitna til. Þar stendur, með leyfi forseta:

„Grafalvarlegt. Við hjá Tandrabrettum höfum rekið vélvædda vörubrettaverksmiðju í rúman áratug, byggt hana upp og veitt 8 starfsmönnum vinnu. Ég get ekki merkt annað á fréttum kvöldsins en að utanríkisráðherra hafi kippt rekstrargrundvelli undan verksmiðjunni. Sala á brettum undir frystan makríl hefur verið hryggjarstykkið í framleiðslunni en það má búast við að hann verði unninn í Noregi á næstu árum. Má búast við andvökunóttum hér á bæ um jólahátíðina.“

Þetta er raunveruleikinn. Svona raunverulegar sögur munum við fá í miklu stærri stíl ef þetta verður samþykkt, þessar endalausu skattahækkanir. Því spyr ég hv. þingmann: Hvenær er nóg, nóg?