skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Virðulegi forseti. Meistarinn hjá Tandrabrettum sem kom og reddaði flugvellinum fyrir okkur með því að fella trén hittir oft naglann á höfuðið. Andvökunætur, þetta er nefnilega málið. Andvökunæturnar verða margar núna um jólahátíðina og næstu misserin, ekki bara í fyrirtækjum landsins. Þær verða í fyrirtækjum landsins og hjá fjölskyldum landsins, eins og ég fór yfir í fyrra andsvari. Fjölskyldurnar sem treysta á það í þessu máli að fá leigutekjurnar. Mögulega dragast saman skatttekjur ríkissjóðs af leigusölu af því að hún fer í meira mæli fram hjá leigusamningunum, samsköttunin, séreignarsparnaðurinn og svo bara almennur rekstrarkostnaður heimilisins í gegnum vörugjöld af bifreiðum, kílómetragjöld og krónutöluhækkanir, hækkun hjá Ríkisútvarpinu og hinu og þessu. Þetta mun gera rekstur heimilisins erfiðari. Svo eru það fyrirtækin eins og í ferðaþjónustu, þjónustuaðilar í sjávarútveginum, öll nýsköpunarfyrirtækin sem treysta á fjárfestingargetu sjávarútvegsins og fleiri atvinnustarfsemi, í ferðaþjónustu og víðar, fjárfestingargetu atvinnulífsins. Þetta er allt að dragast saman núna, allt.
Ég fékk skilaboð um það síðast í gær að fjölbreyttur hópur innan ferðaþjónustunnar í mismunandi tegundum af fyrirtækjum væri farinn að skoða starfsmannalistann af því að einhvern veginn þurfa þau að borga allar þessar álögur. Einhvern veginn þurfa þau að bregðast við samdrættinum, einhvern veginn þurfa þau að undirbúa sig fyrir þetta. (Forseti hringir.) Atvinnuleysi er að aukast og það er alvarlegt. Það skapar andvökunætur.