157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[22:50]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Arna Lára Jónsdóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka þingmanninum fyrir ræðuna og ég vil líka þakka honum fyrir gott samstarf í efnahags- og viðskiptanefnd. Það hefur verið mjög gott og gagnlegt fyrir formanninn að hafa hv. þingmenn í nefndinni. Þótt við séum ekki alltaf sammála þá hefur umræðan verið mjög góð og málefnaleg. Mig langar aðeins að ræða við hann í fyrra andsvari varðandi þessa tillögu um lækkun á frítekjumarki á leigutekjum. Það mátti kannski skilja það á ræðu þingmannsins og ég held að þetta hafi bara verið mistök. Þetta á auðvitað ekki við um allan leigumarkaðinn, alls ekki. Þetta á náttúrlega bara við um íbúðir í eigu einstaklinga, þannig að þetta er ekki allur leigumarkaðurinn. Þessar íbúðir eru sirka 30% af leigumarkaðnum samkvæmt mati sem við fengum frá ráðuneytinu. Þetta á því við um 12.700 einstaklinga. Hér er auðvitað verið að reyna að hvetja til þess að íbúðir nýtist sem heimili fólks, ekki sem fjárfestingarvara. Það hefur verið þannig að íbúðaverð hefur hækkað mjög mikið síðustu ár þannig að fólk hefur leitað í íbúðir til að geyma peninga. Það er kannski ekki skrýtið af því að fólk fer bara með peningana þar sem er gott að hafa þá og þar sem ávöxtunin er mikil. En mig langar að spyrja þingmanninn, af því að ég tel að hann hafi, líkt og ég, fulla trú á atvinnulífinu og verðmætasköpun, hvort hann telji það ekki samt sem áður heppilegra að fólk fjárfesti frekar í verðmætasköpun, fjárfesti frekar í atvinnulífinu en safni að sér íbúðum sem eru heimili fólks og sé ekki að græða á því þegar fólk vantar heimili. Hvort hann sé ekki í grunninn sammála því að það sé betra að fjárfesta í atvinnulífinu, fjárfesta í verðmætasköpuninni og fjárfesta í hlutabréfum, af því að ég held að þar eigum við hv. þingmaður margt sameiginlegt.