skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og einnig fyrir gott og málefnalegt samstarf í nefndinni. Ég tek undir það. Ég held að nefndarmenn í hv. efnahags- og viðskiptanefnd hafi miklu oftar verið sammála en kannski sést hér í þingskjölunum. Þau höfðu bara ekki efni á því að vera sammála okkur. Það er kannski grunnvandinn. Ég veit það alveg að undir niðri eru þau ekkert sátt við allar þessar breytingar sem þau eru að gera hér. En það er þetta með hvernig fólk græðir. Þegar við erum að tala um heimili fólks og rekstur fjölskyldunnar þá held ég að þetta sé nú kannski ekki mikil gróðastarfsemi. Þetta er miklu meira að ná endum saman, reka heimili og búa til þennan fjölskylduauð, þannig að þú getir búið fjölskyldunni heilnæmt og farsælt líf. Ég held að það sé þannig í grunninn.
Ég verð nú að segja að vandamálið varðandi það hvort við viljum að íbúðarhúsnæði sé fjárfesting eða fyrir heimili fólks, að þá held ég að til þess að nýta fleiri íbúðir til að fólk búi í þeim en sé ekki t.d. í skammtímaleigu, Airbnb og öðru slíku, ætti að gera meiri skattalegan hvata til að þetta fari í langtímaleigu, en með þessari aðgerð hér erum við að ýta undir það að þetta fari í atvinnustarfsemi. Fólk getur þá fjárfest í atvinnustarfsemi sem verður þá Airbnb og gistiheimili og ýmisleg atvinnustarfsemi í kringum að þjónusta það. Ég held því að skattalegi hvatinn ætti að fara í hina áttina.
Og jú, ég er sammála því að ég vona að sem flestir kaupi hlutabréf, fjárfesti í nýsköpun og annað slíkt en það er ekkert sem þessi ríkisstjórn býður upp á. Það er ekkert sem ýtir fólki (Forseti hringir.) í að kaupa í fyrirtækjum eða fara í atvinnurekstur í dag því að allir skattar eru að hækka og það er samdráttur í efnahagslífinu (Forseti hringir.) og ríkisstjórnin gerir ekkert til að ýta undir þann viðnámsþrótt (Forseti hringir.) sem ætti að vera þar. Þannig að það er ekki heldur til að hvetja fólk til að selja fasteignir og fara að fjárfesta í fyrirtæki.
(Forseti (EÁs): Forseti vill ítreka það að ræðutíminn er tvær mínútur í þessum lið.)