skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Virðulegur forseti. Ég vil þakka þingmanninum fyrir svarið. Í seinna andsvari mínu langar mig að ræða við hann þessa tillögu um jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku sem hann taldi að væri verið að lauma inn en það er bara verið að hækka í samræmi við hækkun vísitölu neysluverðs. Við vorum öll sammála um þetta í vor og vorum með sameiginlega tillögu, til að mynda að dreifiveiturnar yrðu undanþegnar þessu gjaldi og búinn að vera mikill samhljómur í nefndinni hvað þetta varðar. Það var á þingmálaskrá hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra að koma hér með sérstakt frumvarp sem lýtur að því að jafna raforkukostnað að fullu. Hv. þingmaður talaði um að Rarik væri að stela hækkuninni. Það var kannski fullglannalegt að segja það en það eru alveg rök sem hníga að því að þessi hækkun hafi ekki skilað sér til þeirra sem hún hefði átt að gera og það þarf auðvitað að finna betra kerfi en það hefur ekki unnist tími til þess. En mér fannst mjög mikilvægt sem formaður nefndarinnar að við myndum alla vega fara með þessa vísitöluhækkun fram til þess að reyna að koma einhvers staðar á örlítinn hátt til móts við fólk sem býr í dreifbýli, sem auðvitað er að borga mun hærri raforkukostnað en þéttbýlið. Ég hef alveg skilning á því að það er kannski ekki gott að fá svona vísitöluhækkun inn rétt fyrir atkvæðagreiðslu og slíkt en ég vil þá bara spyrja þingmanninn: Er ekki betra að við förum fram með þessa hækkun heldur en að gera það ekki? Það var alla vega mitt mat sem formanns að dreifbýlið ætti það skilið, þó að það sé skammur tími, að við myndum gera þetta frekar með þessum hætti heldur en að gera það ekki af því að það vannst ekki tími til að gera þessar stóru breytingar sem hæstv. ráðherra hefur hug á að gera. Ég vænti stuðnings hv. þingmanns í þeim efnum ef það er rétt sem hann segir, að Sjálfstæðisflokkurinn sé hlynntur jöfnun á raforkukostnaði og dreifingu raforku. Þá spyr ég hann að því líka.