157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[22:57]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Árnason) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Sum gjöld er einfalt að hækka vísitöluna á. Þetta gjald bara virkar öðruvísi. Sagan hefur sýnt okkur það. Það er mismunandi eignarhald og mismunandi samsetning hjá dreifiveitunum. Þær eru með mismikið af dreifbýli og mismikið af þéttbýli innan síns reksturs þannig að þetta er allt annar mekanismi en að það sé bara að hækka þetta samkvæmt vísitölunni. Þannig að þetta er ekki alveg svona einfalt, því miður, og maður fer að spyrja sig hvort maður sé raunverulega að aðstoða einhvern ef þetta hefur alltaf einhvern veginn keðjuverkandi áhrif inni í gjaldskránni. Maður þarf líka að passa sig að hækka ekki rána of mikið áður en maður gerir hina raunverulegu breytingu. Það er svolítið að trufla mig í þessu máli. Það er svolítið að trufla mig í þessu máli hvernig þetta kemur einhvern veginn bratt inn þegar við vorum búin að vera í þessu samtali um frumvarpið sem kláraðist ekki og hafa ekki komið neinar frekari útfærslur á, því að það er ekki alveg eins einfalt og það hljómar að hækka bara vísitöluna til að bregðast við. Þetta hefur mismunandi áhrif og hefur ólíkan mekanisma eftir því hvar gjaldið er á lagt. Það er það sem ég er svolítið hugsi yfir og finnst því óþægilegt að fá þetta inn með svona skömmum fyrirvara og þurfa að taka ákvörðun um hvort þetta sé skynsamlegt eða ekki.