157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[23:00]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M):

Frú forseti. Hér ræðum við bandorm númer II. Áður en lengra er haldið vil ég taka það fram að að sjálfsögðu tek ég undir álit 1. minni hluta efnahags- og viðskiptanefndar sem er listilega skrifað af Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur, þingmanni Miðflokksins. Áður en lengra er haldið vil ég líka nefna það að bandormar I og II tengjast, þannig að það er ekkert nema eðlilegt að fjallað sé bæði um bandorm I og bandorm II að hluta þegar við erum að fjalla um allar þessar skattahækkanir í þessari umræðu og ég mun gera það. Ég mun byrja á því að fjalla að einhverju leyti um bandorm I.

Með fjárlögum og frumvörpum þeim tengdum er þessi vinstri stjórn sífellt að leggja meiri álögur á fólk og fyrirtæki eins og við höfum heyrt hér síðustu daga og raunar síðustu vikur og mánuði. Þær álögur og skattahækkanir bitna ekki síst á landsbyggðinni. Þetta eru svikin kosningaloforð þar sem a.m.k. tveir stjórnarflokkar, Viðreisn og Samfylkingin, lofuðu því að skattar yrðu ekki hækkaðir á venjulegt fólk, almenning í þessu landi. Skattahækkanir, en ríkisstjórnin reynir að slá ryki í augu fólks með því að kalla þessar skattahækkanir sínar öðrum nöfnum. Svo er það nú þannig að hvað sem ríkisstjórnin kýs að kalla þessar endalausu skattahækkanir þá vitum við það, gott fólk, að skattahækkanir koma niður á fjárfestingu og framleiðni fyrirtækja og auðvitað þynna veski almenns launafólks í þessu landi. Þetta þarf náttúrlega ekkert að koma á óvart. Svo er það líka þannig að skatta- og gjaldahækkanir ríkisstjórnarinnar, ásamt því að það eru ekki teknir útgjaldavextir ríkis, eru auðvitað vísbending um að stjórnarflokkarnir átti sig ekkert á samspili vaxtaskilyrða í atvinnulífi og tekna ríkissjóðs. Ég tel að það sé ekki nægilega hugað og jafnvel ekki hugað að breyttum forsendum sem skapast við hækkun skatta og því sé fyrirséð að forsendur fjárlagafrumvarpsins, og þar með t.d. þessarar stöðugleikareglu sem ríkisstjórnin talar mikið um, séu jafnvel brostnar ef ekki er jafnframt dregið úr útgjöldum.

Það getur vart hafa farið fram hjá ríkisstjórninni að til að mynda talsmenn atvinnulífsins hafa varað við afleiðingum af skattstefnu ríkisstjórnar. Stórauknar skattgreiðslur sem sækja á í ferðaþjónustu og náttúrlega sjávarútvegi munu koma niður á getu greinarinnar til fjárfestinga og nýsköpunar og hvetur til samþjöppunar t.d. í sjávarútvegi og jafnvel víðar. Þetta er gert á sama tíma og samdráttur er á verðmætustu mörkuðum ferðaþjónustunnar.

Síðan er það illa ígrundaði kílómetraskatturinn sem verið er að þröngva í gegnum þingið með gildistöku eftir nokkra daga. Hann er til að mynda til þess fallinn að hafa verulega neikvæð áhrif á ferðaþjónustu sem er ein öflugasta stoð tekjuöflunar ríkissjóðs og því rétt að halda því fram að verið sé að grafa undan efnahag þjóðarinnar með upptöku þessa skatts. Auðvitað er þetta landsbyggðarskattur því að víða um land þurfa íbúar að sækja sér þjónustu, jafnvel lögbundna, um langan veg sem kallar á aukinn kostnað. Þegar þessi kílómetraskattur verður að veruleika þá mun náttúrlega ekki líða á löngu þar til almenningur í þessu landi finnur verulega fyrir minnkandi þykkt veskisins. Það er bara þannig og það kæmi mér ekki á óvart að þegar almenningur í þessu landi fer að fá reikningana þá brjótist hér út gríðarleg reiði.

Síðan er það hækkun vöruskatta á ökutæki. Það er náttúrlega fyrirséð að verð á ökutækjum mun rjúka upp úr öllu valdi og það mun bitna á venjulegu launafólki, ferðaþjónustufyrirtækjum og valda verðhækkunum til viðskiptavina þeirra. Þessu er líka verið að þröngva í gegn þannig að þetta er frekar ömurleg staða.

Síðan er það eitt enn varðandi bandorm I sem tengist náttúrlega bandormi II sem við ræðum núna. Það er nefnilega einnig þannig að þessi ríkisstjórn er að hækka skatta á þá sem síst skyldi. Samnýting skattþrepa milli hjóna og sambúðarfólks hefur gagnast fjölmörgum þar sem tekjur hjóna geta verið mismunandi. Að loka fyrir þann möguleika að ónýtt skattprósenta í lægra skattþrepi þess tekjulægri nýtist þeim sem eru með hærri tekjur rímar afskaplega illa við þá staðreynd að ábyrgð hjóna á skuldum hvors annars verður áfram við lýði. Enn og aftur er verið að gera atlögu að hjónafólki og þar með þeirri fjölskyldueiningu sem þjóðfélagið hefur byggt á um langan aldur. Þessu er auðvitað líka þröngvað í gegn af skattastjórninni sem nú er við völd.

Mig langar að fjalla um hækkun fjármagnstekjuskatts á leigutekjur. Það ýtir undir hækkun á húsaleigu sem kemur fyrst og fremst niður á leigjendum. Fjármagnstekjuskattur á leigutekjur einstaklinga er hækkaður um 50%. Þar er um að ræða þá sem til að mynda eru að leigja út eigin eign eða aukaíbúð í eigin húsi og létta þannig undir með greiðslum áhvílandi lána. Það er nú þannig að skattbyrði leigutekna hækkar úr 11% í 16,5%. Ég vil leyfa mér að segja það að ég held að þessi hækkun geti varla verið hugsuð til enda. Tilgangurinn, eins og segir í frumvarpinu, er að beina einstaklingum í aðrar fjárfestingar en fjárfestingar í fasteignum. Það er sorglegt. Þetta er í raun og veru með ólíkindum.

Síðan langar mig að fjalla um þá gölnu hugmynd fjármálaráðherra að koma í gegn verulegri hækkun á erfðafjárskatti samkvæmt frumvarpi fjármálaráðherra um breytingu á ýmsum lögum um skatta, gjöld o.fl. Í 11. gr. frumvarpsins er skotið inn nýjum málslið þar sem segir að land skuli miðað við markaðsverð. Áður en lengra er haldið vil ég nefna að ég er auðvitað fullmeðvituð um nefndarálit meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar en tel ástæðu til að fara yfir að hverju var stefnt og staðið var frammi fyrir, bæði í 11. og 12. gr. frumvarpsins, vegna þess að ég held að þessi hætta sé ekki alveg frá. Þó svo að meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar leggi til að þetta fari út þá held ég að björninn sé ekki fullkomlega unninn, þó að það sé lagt til að svo stöddu.

11. gr. frumvarpsins snýr að mestu að breytingu á því hvernig eignir skuli verðmetnar. Það rímar náttúrlega á engan hátt við önnur lög og reglur um verðmat eigna. Þetta ákvæði í frumvarpinu, ef þetta yrði ekki tekið út, myndi gera kynslóðaskipti bújarða erfiðari og dýrari með tilheyrandi afleiðingum. Uppgjör dánarbúa yrði mun flóknara og dýrara og í sumum tilfellum yrði ógerningur að framfylgja lögunum, ef þau hefðu farið í gegn óbreytt. Þessu var auðvitað reynt að lauma í gegn í þessum bandormi milli 1. og 2. umræðu. Já, þessu var laumað inn og ég verð að segja að það er eiginlega með ólíkindum að láta sér detta það í hug. Mér þætti gaman að fá upplýsingar um hverjum eiginlega datt þetta í hug. Þeim sem detta svona hlutir í hug virðist ekki þekkja nokkurn skapaðan hlut til á landsbyggðinni: hver staða bænda er, hver staðan almennt á landsbyggðinni er og hvernig bændur hafa það yfir höfuð. Þeir mættu hafa það betra. Mér þætti það því mjög, ég veit ekki hvort ég á að segja skemmtilegt, en mér þætti athyglisvert að fá upplýsingar um hverjum dettur svona lagað í hug. Ég veit náttúrlega að þetta frumvarp kemur frá Viðreisn en kannski kemur þetta frá Skattinum. Líklega kemur þetta frá Skattinum en mögulega frá einhverjum embættismanni í ráðuneyti, hver veit.

Ég vil gera að umtalsefni vinnubrögðin og þær grafalvarlegu afleiðingar hefði enginn „spottað“ þetta. Það var mjög mikið af mjög hörðum umsögnum sem komu inn sem bentu á þetta og stjórnarandstaðan á þinginu, öll sem ein, hefur vakið athygli á þessu og verið með harðar mótbárur. Ég held reyndar líka að mjög margir í stjórnarmeirihlutanum hafi verið uggandi yfir þessum tillögum. Mér finnst vinnubrögðin ógeðfelld og renna stoðum undir að leitað var dyrum og dyngjum að möguleikum til að hækka skatta.

Svo er það 12. gr., að veita Skattinum heimild til að fara inn í erfðamál í allt að sex ár frá því að dánarbússkýrslu er skilað. Núna er fresturinn 40 dagar. Þetta er með ólíkindum og ég bara þakka fyrir allan þann fjölda alvarlegra umsagna sem bárust sem hafa veitt okkur liðsinni í því að í það minnsta koma í veg fyrir að þessu verði þröngvað í gegn í þessari atrennu við afgreiðslu fjárlaga og bandorma á þessu ári. Það er nú þannig að neikvæðar afleiðingar þessarar skattahækkunar voru fyrirséðar, a.m.k. á meðal þeirra sem þekkja til landbúnaðar í þessu landi og er annt um innlenda matvælaframleiðslu og fæðuöryggi í þessu landi. Þetta hefði leitt af sér hækkun erfðafjárskatts fyrir erfingja íslenskra bænda án þess að raunveruleg verðmæti eða fjármagn sé fyrir hendi til að greiða skattinn.

Mig langar aðeins að fara inn í umsögn Deloitte Legal, ekki síst til að hamra á því hvað þetta er grafalvarlegur hlutur, að svona skuli hafa slæðst inn í bandorm — eða þetta hefur ekki slæðst inn. Það er með ráðum gert að þetta hafi verið sett inn í bandorminn. Í umsögninni er gagnrýnt ákvæði í 11. gr. frumvarpsins þar sem mælt er fyrir um að telja skuli fram eignarhlut í óskráðum félögum á markaðsvirði sem Deloitte segir fela í sér, með leyfi forseta: „Gróft frávik frá almennum meginreglum skatta- og félagaréttar sem gilt hafa um árabil.“ Þá segir Deloitte að umræddar breytingar feli í sér talsverða hækkun á erfðafjárskatti. Þær gætu einnig skapað talsverða óvissu um skattalega meðferð vegna annarra skatta. Tillagan um hækkun á skattstofni óskráðra félaga sé því gölluð að því leyti að ekki sé tekið tillit til tekjuskattsskuldbindinga sem hvíla á félögunum sjálfum. Þá er bent á óskýrleika í framkvæmd og að líkur séu á að sama eign yrði tvískattlögð í kjölfar yfirfærslu eignar vegna arftöku.

Það er því í raun og veru með ólíkindum að þetta skuli hafa verið lagt til, þannig að ég þakka bara fyrir allar hörðu umsagnirnar hvað þennan hluta bandorms II varðar.

Hvað skattlagningu lands og jarða varðar segir Deloitte að þegar slíkar eignir skipti um hendur við arfleifð kveði frumvarpið á um að eignirnar skuli meta til markaðsverðs öndvert við það sem núverandi lög kveði á um, þ.e. fasteignamat. Sú sem hér stendur er ein þeirra sem mótmæltu þessum áformum harðlega því ef þetta hefði farið óbreytt í gegn þá hefði breytingin dregið verulega úr möguleika á og hreinlega komið í veg fyrir kynslóðaskipti í landbúnaði, aukið líkur á samþjöppun jarðeigna með neikvæðum áhrifum á landsbyggð, byggðafestu, landnýtingu og langtímaáburð á jörðum. Það hefði náttúrlega bara ýtt undir að jarðir færðust í auknum mæli til fjársterkra aðila, fjárfesta og fjárfestingafyrirkomulags í stað þess að haldast í fjölskyldum og virkri nýtingu. Þannig að það er jákvætt að það komi fram í meirihlutaáliti efnahags- og viðskiptanefndar að bæði 11. og 12. gr. skuli fara út og ég vona að það verði ekki reynt aftur að lauma slíkum óskapnaði inn í erfðafjárlög.

Mig langar að vitna til þess sem kemur fram í áliti meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar vegna þess að það veldur mér áhyggjum, með leyfi forseta:

„Að virtum þeim athugasemdum og röksemdum sem fram hafa komið í umsögnum og fyrir nefndinni er það álit meiri hlutans að ekki sé tímabært að ráðast í þær breytingar á lögum um erfðafjárskatt sem lagðar eru til í frumvarpinu. Að mati meiri hlutans er brýnt að ráðherra taki málið til ítarlegri skoðunar og meti þau áhrif sem breytingarnar kunna að hafa á fjárhagslega stöðu erfingja, kostnað félaga og afkomu ríkissjóðs.“

Þetta segir mér það að þó að mér finnist mjög jákvætt að 11. og 12. gr. fari út úr frumvarpinu þá hef ég enn þá af þessu áhyggjur. Þetta segir mér líka að það þarf að fylgjast með vegna þess að miðað við þessa orðnotkun í áliti meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar er ekki öruggt að þetta mál sé fullkomlega afgreitt og að þetta muni ekki líta dagsins ljós aftur. Ég mun því fylgjast með þessu og mun bregðast aftur við ef ég sé þetta aftur í frumvarpi eða bandormi. En maður á að hrósa fyrir það sem vel er gert þannig að það er ánægjulegt að þetta fari hér út.

Varðandi jöfnun raforkukostnaðar vil ég taka fram að þetta er auðvitað lítið en jákvætt skref, þau mættu vera stærri og vonandi koma bara stærri skref í framhaldinu. En ég vil enda á bráðabirgðaákvæði EE-liðar búvörulaga. Ég held að það sé mikilvægt hvað þetta varðar að hlusta á Bændasamtökin og máli mínu til stuðnings vil ég vitna til umsagnar Bændasamtaka Íslands, sem ég tek undir, um 7. tölulið 1. mgr. bráðabirgðaákvæðis EE-liðar. Það þarf ekkert að framlengja þetta bráðabirgðaákvæði tollfrelsis. Ég meina, Bændasamtök Íslands hljóta að vera með puttann á púlsinum hvað þetta varðar þannig að ég tek fyllilega undir óskir samtakanna varðandi það.

Eins og ég sagði varðandi erfðafjárskattinn, ég ætla að enda þá á því, mun ég fylgjast mjög vel með því hvort þetta komi hér inn aftur vegna þess að aðilar sem leggja svona hluti til, að miðað sé við markaðsverð jarða en ekki fasteignamat við arftöku, þekkja ekki hvernig hlutirnir eru á landsbyggðinni. Ég mun því fylgjast mjög vel með því hvort þetta komi fram aftur og mun berjast hart gegn því að það fari í gegn.