157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

samkomulag um skiptingu og stjórn makrílstofnsins.

[11:45]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Ég vil taka undir þetta um aukið samráð. Ég er sammála því. Ég fór sérstaklega yfir það á fundi utanríkismálanefndar í dag þegar þetta kom upp að ég væri meira en reiðubúin að setja þetta í fastar skorður. Það er mjög mikilvægt að við finnum taktinn í þessu, ekki spurning. Við erum búin að upplifa alls konar og ég var minnt á það m.a. fyrir nefndinni í morgun að hafa verið líka í stjórnarandstöðu. Já, ég man alveg eftir því í gegnum tíðina að það hafa komið upp hnökrar. Það hefur til að mynda verið settur viðauki við varnarsamninginn við Bandaríkin án þess að það hafi verið rætt við nefndina. Það var ákveðið að stofna sendiráð á sínum tíma án þess að það væri rætt við nefndina. Ég tek því undir það að við þurfum að koma þessu í fastar skorður þannig að við getum fúnkerað, utanríkismálanefnd og ráðuneytið, af því að það eru viðkvæmar upplýsingar í gangi hverju sinni. Við vorum í þessu máli sem var afar viðkvæmt. Engir hagsmunaaðilar frá neinum löndum voru á þessum samningafundum. Við vorum í sinki við aðrar þjóðir um hversu miklar upplýsingar færu út, fyrst og síðast til þess að verja íslenska hagsmuni. (Forseti hringir.) Út á það gengur þessi samningur, að verja íslenska hagsmuni og byggja upp makrílstofninn til lengri tíma. En ég er meira en reiðubúin til þess að fara yfir samskipti nefndarinnar og ráðuneytis (Forseti hringir.) til þess einmitt að efla vinnubrögðin hér á þingi.