157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

samkomulag um skiptingu og stjórn makrílstofnsins.

[11:46]
Horfa

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir (S):

Frú forseti. Það er gríðarlega mikilvægt fyrir hv. utanríkismálanefnd, sem er mörkuð ákveðin sérstaða í lögum til að tryggja samráð og samtal um mál sem varða hagsmuni okkar og eru talin meiri háttar í þeim skilningi, og þegar það fylgir tilkynningu að um sé að ræða tímamótasamning þá hefði farið betur á því að utanríkismálanefnd hefði getað átt raunverulegt samtal og samráð við hæstv. utanríkisráðherra í aðdraganda þeirrar ákvörðunar. Samráðsskyldan er í lögum og hún er ekki sú sama og upplýsingaskylda. Það á við um þetta mál og ég fagna orðum hæstv. utanríkisráðherra um að við leggjumst yfir það með hvaða hætti hægt er að bæta þetta. Við erum einfaldlega að stíga inn í tíma þar sem mun reyna á meira en makrílsamning þar sem við verðum hér að hafa traust og burði til að tala um viðkvæm mál og getu til að flokka hvað sé trúnaður og hvað sé ekki trúnaður til þess að geta haldið á málum af þeirri alvöru og ábyrgð sem mun þurfa meira á að halda á næstu misserum.