157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

samkomulag um skiptingu og stjórn makrílstofnsins.

[11:49]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegi forseti. Það eru mikil vonbrigði, þetta samráðsleysi hæstv. utanríkisráðherra í þessu mikilvæga máli og ekki bara við utanríkismálanefnd heldur einnig við greinina, sem er fordæmalaust. Það er fullyrt hér af henni að samráð hafi ekki átt sér stað í Noregi og í Færeyjum. En nú höfum við upplýsingar um að það var náið samráð við greinina þó að þeir hafi kannski ekki beint setið við borðið. Það er verið að færa verðmæti úr landi. Það er verið að hvetja til þess eða opna fleiri hlið til þess að vinnsla fari úr landi. Við höfum stært okkur af því að fullvinna afla og fullnýta auðlindina sem mest má vera hér á Íslandi. Þetta er auðvitað stórhættuleg þróun. Við erum líka að kvitta upp á ósjálfbærar veiðar. Það er mikil ánægja með þennan samning í Noregi og það segir auðvitað sína sögu.

Virðulegur forseti. Þetta er hættuleg þróun sem er að eiga sér stað hjá þessari ríkisstjórn, hvernig vaðið er áfram, að því er virðist í blindni, í mikilvægum málum.