samkomulag um skiptingu og stjórn makrílstofnsins.
Frú forseti. Hér erum við að ræða sameiginlegt hagsmunamál þjóðarinnar. Mér finnst að það mál verðskuldi að menn séu ekki að snúa út úr eða séu með upphrópanir heldur að við reynum að vera sameinuð út á við í þessu máli. Það sem ég benti á í umræðunni og einhverjir hafa misskilið er að ef makrílstofninn dregst áfram saman þá er hætt við því að hann komi minna inn í lögsögu Íslands sem leiðir til þess að samningsstaða Íslands versnar. Það er ýmislegt að gerast í rannsóknum á makríl sem er rétt að fara yfir í þessu sambandi, m.a. stórfellt endurmat á stofninum til fyrri ára þar sem er alveg ljóst að stofninn var miklu stærri, alla vega miðað við síðustu upplýsingar frá Alþjóðahafrannsóknaráðinu, en fyrri athuganir gerðu ráð fyrir. Það er rétt að við reynum að finna sameiginlegan takt í þessu máli og vöndum okkur í þessari umræðu.