157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

samkomulag um skiptingu og stjórn makrílstofnsins.

[11:58]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Með vísan til orða hérna áðan hyggst ég einmitt ræða samskipti hæstv. ráðherra við Alþingi og nefndir þingsins í þessu stóra máli, og þetta er stórt mál. Eins og við höfum séð í fjölmiðlum þá gera útgerðarmenn nú ráð fyrir því að makrílvinnsla leggist af á Íslandi með miklum áhrifum fyrir byggðarlög víða um land. Í þessu máli hefur því verið haldið fram að samráðsskyldan hafi verið uppfyllt með því að sagt hafi verið frá því á utanríkismálanefndarfundi fyrir mörgum vikum að verið væri að ræða makríl. Einu sinni sem oftar var verið að ræða makríl. Það sagði okkur ekki neitt. Þetta er ekki samráð, frú forseti. Og ef ekki er einu sinni haft samráð við Alþingi eða nefndir þingsins í málum af þessari stærðargráðu þá er eitthvað að. Ég hvet hæstv. forseta til að bæta þar úr.