samkomulag um skiptingu og stjórn makrílstofnsins.
Forseti. Ég ítreka að við þurfum að efla samráð á milli nefndarinnar og ráðuneytisins. Ég vil engu að síður undirstrika að það var kynnt að þessi samningsgerð væri í bígerð, þannig að það sé alveg skýrt. Það er oft svolítið furðulegt að heyra fólk kvarta hér undan hinu og þessu, meira að segja fólk sem mætir ekki einu sinni á fundina sjálfa eða hefur ekki seturétt í nefndinni. En það er önnur saga.
Ég velti því fyrir mér hvort við ættum, af því að hér hef ég bara mínútu til að fara yfir þau atriði sem rangfærslur hafa verið um, ég hef 30 sekúndur, að fara í frekari umræðu um þetta, hvort sem er í atvinnuveganefnd eða í þingsal. Það er gríðarlegt hagsmunamál fyrir Íslendinga að koma að þessum samningi, að vinna að því að heildarsamkomulag náist, af því að það er verið að vinna áfram með Grænlendingum og ESB til að ná heildarsamkomulagi. Ef við hefðum verið skilin eftir í þetta sinn hefði staða okkar verið miklu verri. Við erum að tryggja okkur aðgang að veiðum í færeyskri lögsögu og í norskri lögsögu. Það er ekki þannig að Íslendingar geti ekki boðið í þá vinnslu, ef það verður landað í Noregi. Það var SFS m.a. upplýst um og gerði ekki athugasemdir við. (Forseti hringir.) Reynsla Færeyinga af þessu er góð. Þeir hafa keypt á markaði og síðan unnið heima. Það eru margar rangfærslur sem þarf að leiðrétta hér (Forseti hringir.) og ég óska eftir því að menn hafi í huga að við erum að ræða íslenska hagsmuni sem við erum að verja. Við erum að verja þá með áþreifanlegum hætti. Það er í fyrsta sinn verið að verja og viðurkenna hlutdeild Íslands í makrílstofninum og það ætti að vera fagnaðarefni. (Forseti hringir.) Það eru allar þjóðir að gefa eitthvað eftir. Við erum ekki að fá allt en við erum að fá mjög mikið, ekki síst viðurkenninguna og það að taka til lengri tíma þátt í því að byggja upp makrílstofninn á sjálfbæran hátt. Ég vona að við séum sammála um það.
(Forseti (ÞSv): Forseti minnir á tímamörkin.)