157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

samkomulag um skiptingu og stjórn makrílstofnsins.

[12:05]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Ég óttast að hæstv. utanríkisráðherra hafi ekki fengið skilaboðin og hvet hæstv. forseta til að koma þeim skýrt á framfæri því að hér kom hæstv. ráðherra upp og taldi sig greinilega hafa uppfyllt samráðsskyldu sína við Alþingi með því að það hefði verið nefnt í framhjáhlaupi fyrir mörgum vikum síðan að verið væri að ræða fiskveiðistjórn, sem jafnan er í gangi, búið að vera í mörg ár. Að þannig sé samráðsskyldan við Alþingi, um það sem hæstv. ráðherra kallaði sjálfur sögulega samninga, uppfyllt. En við getum verið þakklát fyrir það að Viðreisn var ekki við stjórnvölinn í þorskastríðunum. Þá hefði væntanlega komið sú skýring að það hefðu náðst sögulegir samningar með því að Íslendingar fengju að kaupa afla, fengju að bjóða í afla í Hull eða Grimsby.