samkomulag um skiptingu og stjórn makrílstofnsins.
Virðulegur forseti. Ég hef verulegar áhyggjur af stöðunni sem er komin upp hér í þinginu. Ég spyr mig hvort það sé óhætt að þingið fari í frí yfir jólin. Ég held að við getum ekki sleppt þessari ríkisstjórn lausri. Hún skipar ekki nefndir sem hún á eftir að spyrja þingið hvort það eigi eftir að leggja niður, hún bara tekur lögin í sínar hendur. Þau segja upp lögreglustjórum, segja upp skólastjórum út af kerfisbreytingum sem eru ekki enn þá komnar til þingsins. Þau koma hér korteri fyrir atkvæðagreiðslur með minnisblað úr fjármálaráðuneytinu til að breyta lögum sem fá ekki fulla þinglega meðferð. Við erum að fara að greiða hér atkvæði á eftir um minnisblað sem kom 11. desember, eftir að efnahags- og viðskiptanefnd lauk störfum, og núna eru þau að gera samninga ítrekað úti í heimi án þess að tala fyllilega við utanríkismálanefnd eða Alþingi.
Virðulegur forseti. Þessu þurfum við að hafa áhyggjur af og þetta þurfum við að passa upp á. Ég bið virðulegan forseta að huga hér að stöðu Alþingis með þetta í huga. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)