157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

Frestun á skriflegum svörum.

[12:13]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Borist hefur bréf frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 384 um kostnað við starfslokasamninga frá Karli Gauta Hjaltasyni.

Einnig hafa borist bréf frá mennta- og barnamálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 226 um sérúrræði frá Ingibjörgu Isaksen og á þskj. 409 um fíknimeðferðarúrræði fyrir börn frá Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur. Þá hafa borist bréf frá dómsmálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 398 um fíkniefnanotkun í fangelsum, á þskj. 399 um Kvíabryggju og þskj. 400 um erlenda fanga, allar frá Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur.