157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

fjáraukalög IV 2025.

299. mál
[12:17]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Við förum hér í atkvæðagreiðslu um fjárauka IV og það er ljóst með þessum fjórða fjárauka fyrir fjárlagaárið 2025 að núverandi ríkisstjórn tók við einstaklega góðu búi fyrir ári síðan. Þessi fjórði fjárauki er staðfesting á því. Fjárlögin sem samþykkt voru hér í þessum sal 18. nóvember í fyrra við sérstakar aðstæður, 12 dögum fyrir kosningar, hafa elst einstaklega vel. Hinn þátturinn sem við erum að huga hér að eru lögin um opinber fjármál sem voru samþykkt hér í þinginu fyrir nánast tíu árum. Agi og formfesta eru eitthvað sem þarf að vinna miklu betur með. Þessi fjárauki fer ekki eftir lögum um opinber fjármál að mörgu leyti. Það er farið í ný verkefni sem eru ekki eins og lögin gera ráð fyrir. Ég hvet alla þingmenn til að lesa 1. mgr. fjáraukans til að skilja betur hvað lögin um opinber fjármál snúast um, en það er ljóst að ríkisstjórnin tók við gríðarlega góðu búi hér við stjórnarskipti.