umræða um makríl í utanríkismálanefnd.
Frú forseti. Ég sé ástæðu til að ítreka við hæstv. forseta mikilvægi þess að tekið sé á samráðsmálum ráðherra gagnvart hv. Alþingi, sérstaklega í ljósi ummæla hv. þm. Pawels Bartoszeks, formanns utanríkismálanefndar, hér áðan, þar sem gefið var til kynna að kynningin á makrílmálinu hafi verið eitthvað meiri en raun bar vitni. Vísað hefur verið til þess að sú kynning hafi farið fram á fundi 10. nóvember, fundi sem haldinn var í trúnaði og símar meira að segja teknir af þeim sem þar mættu, sem voru raunar allir fulltrúar í utanríkismálanefnd eða varamenn þeirra. Í fundargerð fundarins sem er opinber, þótt efnið hefði verið trúnaðarmál, má sjá dagskrárliðinn Fiskveiðisamningar sem 8. lið. Undir þeim lið segir eingöngu: „Sjá umfjöllun um 6. dagskrárlið.“ Hver var 6. dagskrárliður? Samráð um öryggis- og varnarmál. Þar var hæstv. ráðherra mættur við áttunda mann, engan sem var að fjalla um fiskveiðistjórn eða samninga við önnur ríki í þeim efnum, og nefndi í framhjáhlaupi að verið væri að ræða makrílveiðar og önnur samskipti um fiskveiðistjórn. (Forseti hringir.) Þetta, frú forseti, finnst mér vera villandi framsetning hjá hæstv. ráðherra og hv. formanni utanríkismálanefndar, (Forseti hringir.) að gefa til kynna að það samráð, eins og það var kallað, við utanríkismálanefnd og sem vísað er í, hafi verið eitthvað meira en þetta.