skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Virðulegi forseti. Við erum hér að fara að greiða atkvæði um ýmis mál tengd sköttum, tollum og gjöldum. Þar ber kannski hæst lækkun á frítekjumarki vegna leigutekna einstaklinga á íbúðarhúsnæði, það verður lækkað úr 50% í 25% í samræmi við aðgerðir ríkisstjórnarinnar í húsnæðispakka sem kynntur var í haust. Hér er verið að minnka skattaafslátt leigutekna og verið að reyna að beina sparnaði fólks í aðrar fjárfestingar en heimili fólks og styðja frekar við það að fjárfesta í verðmætasköpun. En það er líka verið að hækka frítekjumark barna undir 16 ára úr 180.000 kr. í 300.000 kr. og svo er stórt mál fyrir okkur sem búum á landsbyggðinni að það er verið að leggja til lítið skref í að jafna raforku sem ég fer kannski betur yfir í atkvæðaskýringu hér á eftir.