skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Frú forseti. Vegna umræðu sem er stöðugt uppi varðandi lækkun vaxta á Íslandi undanfarin misseri, þar sem ríkisstjórnin hefur stöðugt verið að hampa árangri í vaxtalækkunum, þá er rétt að geta þess að vaxtalækkunarferlið hófst hér haustið 2024, um mánaðamótin september/október, þar sem vextirnir lækkuðu um 0,25%, meginvextir Seðlabankans. Í nóvember lækkuðu þeir um 50 punkta, 0,5%, og síðan aftur áður en þing kom til starfa í byrjun árs, mánaðamótin janúar/febrúar, lækkuðu þeir aftur um 50 punkta. Síðan stöðvast ferlið meira og minna eftir mars, lækkar um 25 punkta og maí 2025. Síðan stoppar það og nú er lækkun, vegna þess að búið er að hægja verulega á í efnahagslífinu núna í nóvember, um 25 punkta. Allar meginforsendur fyrir vaxtalækkununum voru komnar af stað í fyrrahaust og í tengslum við þau fjárlög sem voru samþykkt í fyrra, 19. nóvember. (Forseti hringir.) Það er ótrúleg umræða sem er uppi í þessu landi af hálfu meiri hlutans, hvernig þau þakka sér fyrir vaxtalækkunina (Forseti hringir.) sem gerðist ekkert í sjálfu sér á vakt núverandi ríkisstjórnar. Þetta var allt komið fram meira og minna.