157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[12:47]
Horfa

Pawel Bartoszek (V) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Mér finnst alltaf svolítið skoplegt þegar fólk kemur hingað og sakar okkur um að flækja hluti. Ef fólk sem hefur stjórnað skattamálum hér í áratugi hefur þá mynd að skattarnir hafi verið einfaldir þangað til að þessi ríkisstjórn tók við, og flækist markvert með þessum bandormi, þá held ég að það þurfi aðeins að endurskoða þá sjálfsmynd sína. Það er vissulega rétt að það er oft svolítið gert af því að taka burtu ýmsar undanþágur sem hefur verið komið á en ég styð þá nálgun í grunninn. Ég vil fagna því sérstaklega að hér er verið að framlengja heimild til að draga frá vegna vissra nýsköpunarfjárfestinga sem og að hækka frítekjumark barna sem og það að hér er komin lagabreyting vegna þess að verið er að gera ÍL-sjóð upp og ég fagna því. Svo vil ég bara þakka fyrir gott samstarf í nefndinni.