157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[12:49]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Forseti vekur athygli hv. þingmanna á því að enn eiga þó nokkrir þingmenn eftir að tjá sig um atkvæðagreiðsluna. Atkvæðagreiðsla um þingmál er atkvæðagreiðsla um þingmál en ekki efnisleg umræða um efni þingmálsins. Ég hygg að það verði gott fyrir hv. þingmenn að róa aðeins hugann í jólahléinu og fara yfir það til hvers við notum bæði fundarstjórn forseta og þær umræður sem hér bjóðast samkvæmt þingskapalögum um atkvæðagreiðsluna eða annað sem fer fram í þessum sal.

En hér heldur áfram efnismikil og góð umræða um atkvæðagreiðsluna.