157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[12:59]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Ég sá mig knúinn til að koma hér upp og bregðast við orðum hv. þm. Sigmars Guðmundssonar þar sem hann talar um að hér sé á ferðinni verkstjórn sem er að taka til. Stjórn sem þenur út ríkisfjármálin, þenur út fjárlögin um 143 milljarða, skilar tapi af fjárlögum og eykur skuldir á heimilin og fyrirtækin í landinu um 30 milljarða er ekki tiltekt. Þetta er fullkomin uppgjöf fyrir verkefninu, hv. þingmaður. Það er ekki verið að hagræða í rekstri ríkisins, það er ekki verið að stoppa upp í fjárlagagatið. Þetta er fullkomin uppgjöf. Hér er ríkisstjórn sem eyðir meiru en hún aflar. Það er svo sem ekkert nýtt í sögu vinstri stjórna á Íslandi en menn skulu ekki koma hér upp og tala um tiltekt þegar útgjaldablásturinn er eins og hann er og skattlagningin og gjaldahækkanir á fyrirtækin og heimilin í landinu eins og þau eru. Þetta er fullkomin uppgjöf og ekkert annað.