157. löggjafarþing — 51. fundur, 17. des. 2025.
skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
257. mál
Virðulegi forseti. Ég tek undir með hv. þm. Pawel Bartoszek. Það er mikilvægt að við séum að framlengja þennan skattafslátt, m.a. með það í huga að halda áfram að ýta undir grósku hjá nýsköpunarfyrirtækjunum þannig að þetta styrki þau til skemmri og lengri tíma. Ég segi já.