157. löggjafarþing — 51. fundur, 17. des. 2025.
skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
257. mál
Virðulegur forseti. Við í Miðflokknum styðjum þessa tillögu. Hér kom hv. þm. Sigmar Guðmundsson upp áðan og nefndi að brýnasta málið, sem allir væru sammála um, væri að ná niður vöxtum og verðbólgu. Nú liggur fyrir að við förum í öfuga átt ef þetta er samþykkt, þannig að ef það er einhver meining á bak við orðin þá trúi ég því að meiri hlutinn styðji þessa tillögu, ef þið viljið raunverulega ná þeim markmiðum sem þið segist vilja ná fram.