157. löggjafarþing — 51. fundur, 17. des. 2025.
skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
257. mál
Virðulegur forseti. Ég styð ekki þessa tillögu af því að hluti af því sem ríkisstjórnin er að leggja til er m.a. að hvetja til fjárfestinga í íslensku atvinnulífi. Nú þurfum við frekari fjárfestingar í íslensku atvinnulífi, við þurfum hvata þangað. Við kjósum því að fara þá leið, stjórnarandstaðan kýs að fara þessa leið. Gott og vel. Ég virði það. Fyrst og síðast skiptir máli að við beinum hvötum almennings í fleira en steinsteypu og þetta er ein leið til þess. Ég segi nei.