157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[13:14]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Forseti. Nú er ég bara að hrósa ríkisstjórninni. Þetta er góð tillaga. Þetta er góð tillaga þar sem börn sem eru yngri en 16 ára komast aðeins nær því að vera á sama stað og börn eldri en 16 ára þegar kemur að skattgreiðslum vegna vinnu. Því sem mig langar hins vegar að beina til hæstv. ríkisstjórnar, ef þeir skoða þetta frekar, er að jafna leikinn enn frekar vegna þess að það er eiginlega enginn tilgangur með því að hafa þetta ekki bara í línu við persónuafslátt. Af hverju þarf barn sem er 15 ára og er að vinna að borga hærri skatta en barn sem er 16 ára að vinna? Það er eitthvað sem þarf að leiðrétta og skoða bestu leiðina til að gera það. Ég vildi því bara í þessari atkvæðaskýringu koma upp og hrósa fyrir góða tillögu.