157. löggjafarþing — 51. fundur, 17. des. 2025.
skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
257. mál
Virðulegi forseti. Við erum hér að greiða atkvæði um hækkun skatta á leigutekjur. Í mörgum tilvikum er um að ræða ungt fólk sem er tímabundið að leigja út nýkeypta íbúð sína til að geta komist í gegnum erfiðasta hjallann í greiðslunum. Það er verið að hækka skatta á þessar leigutekjur og gera ungu fólki erfiðara um vik að eignast sína fyrstu íbúð. Þingmaðurinn segir nei.