157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[13:27]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Hv. þm. Ragnar Þór Ingólfsson mætti hafa það í huga að það er góð og gild regla að segja alltaf fyrsta svarið sem manni dettur í hug því að það er yfirleitt rétt. Í þessu tilviki skil ég ekki, ég bara skil það ekki, hvernig ríkisstjórninni dettur í hug að leggja þetta fram. Þetta gengur ekki aðeins gegn kosningaloforðum ríkisstjórnarinnar. Þetta gengur líka gegn yfirlýstum markmiðum hennar á svo margan hátt, markmiðum alveg fram á þennan dag. Þetta dregur úr framboði og aðgengi að húsnæði á leigumarkaði. Þetta hækkar leiguverð. Þetta ýtir undir aukna verðbólgu. Hvað liggur hér að baki? Ég held að það hljóti bara að vera að þetta hafi ekki verið hugsað til enda frekar en mörg önnur mál. Hv. þingmönnum stjórnarliðsins er einfaldlega sagt að þeir eigi að styðja þetta. Hæstv. ráðherrum tekst ekki að útskýra fyrir þeim hvers vegna þeir eigi að styðja þetta eða færa rök fyrir þessu að öðru leyti; þessi ríkisstjórn hendir bara tilviljunarkennt fram einhverjum stefnumálum og losnar síðan ekki út úr þeim. Ég hvet því hæstv. ríkisstjórn til þess að nýta jólin vel til að hugsa til enda þau mál sem koma inn í þingið eftir jól. Þingmaðurinn segir nei.