skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Virðulegur forseti. Hér eru greidd atkvæði um tillögu hæstv. ríkisstjórnar um aukna skattheimtu af leigutekjum fólks sem ekki er með neinu móti hægt að telja að sé fólk sem standi í fjárfestingum. Það er ekki um það að ræða að þetta falli á fólk sem stendur í stórfelldum fjárfestingum á húsnæðismarkaði. Þvert á móti er því haldið hér fram, og það virðist vera eitt af markmiðunum, eins og kom fram í máli hæstv. utanríkisráðherra, að með þessu eigi að fara að stýra fjárfestingu fólks úr fjárfestingum í húsnæði yfir í fjárfestingar á atvinnumarkaði. Þetta er algjör misskilningur og misráðið af hæstv. ríkisstjórn og hæstv. ráðherra að ráðleggja fólki á þennan veg. Þetta úrræði er komið til af ástæðu. Það er komið til vegna þess að þeir sem eiga þessar fasteignir og standa ekki í fjárfestingum geta hvorki inn- eða útskattað rekstrarkostnað af þessu húsnæði. Þetta er komið til af ástæðu og það er mikill misskilningur að afnema þetta ákvæði eins og það stendur í lögum. Ég segi nei við þessari breytingartillögu hæstv. ríkisstjórnar.