157. löggjafarþing — 51. fundur, 17. des. 2025.
skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
257. mál
Frú forseti. Ég vil gera grein fyrir atkvæði mínu vegna þess að mér gramdist mjög þegar þáverandi fjármálaráðherra, Geir H. Haarde, setti á erfðafjárskatt. Mér finnst þetta vera tvöfaldur skattur og er mótfallinn erfðafjárskatti. Ég segi já í þetta sinn en mun vinna með öllum ráðum að því að leggja þetta niður eins fljótt og auðið verður og tel að það hafi verið stór mistök hjá Sjálfstæðisflokknum að setja þennan skatt á okkur.