157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[13:48]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf):

Virðulegur forseti. Það gefst vonandi tækifæri til að ræða erfðafjárskattinn betur. Það var að mínu frumkvæði, sem formanns nefndarinnar, að fresta þessu aðeins og skoða betur áhrifin. Ég er í grunninn ekkert á móti því að greiddur sé erfðafjárskattur, hann getur verið eðlilegur, en það gafst ekki tími, í ljósi þess að nú er desember og við erum að reyna að klára hér bandorminn, til að fara betur yfir þetta og skoða þau áhrif sem komu fram í umsögnunum. Það var af þeirri ástæðu sem ég lagði til að við myndum fresta þessu ákvæði.