157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[13:49]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegi forseti. Það er áhugavert að heyra hér sitthvor sjónarmiðin hjá Viðreisn og Samfylkingunni. Ég mun halda með Viðreisn í því að afleggja erfðafjárskattinn, ef mér heyrðist rétt. Ég fagna því og vil hrósa hv. formanni efnahags- og viðskiptanefndar fyrir að leggja það til að fresta þessu, fresta þessari skattlagningu, erfðafjárskattinum, enda kom nú málið líka mjög illa unnið fyrir utan það hvað hugmyndin var rugluð. En ástæðan fyrir því að það tókst að fresta erfðafjárskattinum var af því að það var ekki búið að reikna með þessu inni í tekjum ríkissjóðs. Ef þetta hefði haft einhvern verðmiða, ef legið hefði fyrir hvað þetta hefði skilað miklum tekjum í ríkissjóð, værum við ekki að greiða atkvæði um að fresta þessu hér. Það er algerlega á hreinu.

Ég vil líka upplýsa hv. þingmenn um það, sérstaklega hv. þm. Ingvar Þóroddsson, að Sjálfstæðisflokkurinn, í samstarfi með Vinstri grænum, fjórfaldaði frítekjumark erfðafjárskatts, fjórfaldaði. Það er bara rétt byrjunin til að afnema þetta og vonandi tekst okkur það í sameiningu sem fyrst.